Opið HúsFöstudaginn 7. nóvember bauð starfsfólk Skógarbæjar aðstandendur að koma og skoða starfsemi Skógarbæjar.
Aðstandendur gátu heimsótt sitt fólk á þær deildir sem það dvelur á og einnig farið á aðrar deildir og rætt við starfsfólk og heimilismenn þar. Iðja og sjúkraþjálfun kynntu sína starfsemi og var starfsfólk þar til staðar til að leiðbeina og sýna hvað í boði er og hvað er verið að fást við þessa dagana.
Mikil eftirvænting og gleði var meðal heimilismanna og starfsmanna fyrir þennan dag og allt gert til að búa sem best í haginn og allir gætu notuð góðrar stundar saman. Starfsfólk í eldhúsi tók að sér að baka vöfflur og þeyta róma og var þessi hressing vel þegin. Um 250 aðstandendur komu og nutu dagsins með okkur, fengu sér vöfflur og kaffi og spjölluðu. Það ríkti mikil gleði og má segja að þessi dagur hafi fært okkur öll nær hvort öðru og viljum við þakka aðstandendum fyrir góða mætingu og þátttöku þeirra í þessum góða degi.