Lions styrkur 2009
Frá árinu 2007 hefur Lionsklúbburinn Freyr veitt styrk til Skógabæjar samtals 1.3 m.kr. sem er ætlað að nota í uppbyggingu og eflingu á félagsstarfi fyrir yngri hjúkrunarsjúklinga í Skógarbæ. Nú hefur klúbburinn veitt styrk til viðbótar sem nemur 700 þúsund kr. Með þessum styrkjum hefur verið hægt að ráða starfsfólk sem eingöngu sinnir þeirra þörfum og óskum og hefur þessi viðbótastarfsemi farið fram bæði inn og utan stofnunarinnar. Styrkirnir hafa gert okkur kleift að sinna mikilvægri þjónustu, auka lífsgæði og ánægju þeirra sem njóta hennar og gefa þeim tækifæri til að taka meira þátt í lífinu, komast á kaffihús, leikhús, söfn, tónleika eða kvikmyndahús, allt eftir áhuga þeirra og getu.
Styrkurinn var afhentur 19. maí og var Lionsklúbbnum þakkað fyrir hlýjan hug í garð Skógarbæjar og deildarinnar sem þeir sýna með svo örlátu framlagi. Það er þeim að þakka að þetta metnaðarfulla verkefni hafi farið af stað í Skógarbæ.
Hrefna Sigurðardóttir
Forstjóri Skógarbæ