Styrkur frá Lions
Styrkur veittur af Lionsklúbbnum Frey
Árið 2007 veitti Lionsklúbburinn Freyr styrk að upphæð 600.000.00 kr. og nú vorið 2008 að upphæð 700.000.00 kr. til uppbyggingar félagsstarfs á deild fyrir yngri hjúkrunarsjúklinga í Skógarbæ. Deildin sem um ræðir er endurhæfingardeild og búa þar 11 manns. Sumarið 2007 var unnið eftir hugmyndafræði félagslegrar kenningar sem kallast “Strength Based Perspective” en þar er gert ráð fyrir að sérhver einstaklingur, sama hversu alvarleg fötlun hans er, búi yfir eiginleikum sem gera honum kleift að lifa jákvæðu lífi með fötlun sinni og þroskast áfram. Lögð er áhersla á að tengsl einstaklingsins og samskipti hans við umhverfi sitt og fundið er út hvar jákvæð tengsl eru sem unnt er að hlúa að. Jafnframt er lögð áhersla á að einstaklingurinn sjálfur viti best hvaða félagslegar þarfir hann hefur og unnið er í að styrkja viðkomandi með það í huga.
Nú í sumar, 2008, verður haldið áfram með þetta mikilvæga verkefni og viljum við færa Lionsklúbbnum Frey okkar bestu þakkir fyrir að veita okkur þennan styrk sem gerir okkur kleift að hlúa enn betur að skjólstæðingum.
Hrefna Sigurðardóttir
forstjóri