Sumargrill starfsmanna
Þann 4. júní verður grillveisla fyrir starfsmenn Skógarbæjar. Árlega hafa starfsmenn notið þess að borða með heimilismönnum þegar grillað er fyrir deildirnar en í ár var ákveðið að halda sérstakt grill fyrir starfsmenn. Þeir fá þá tækifæri til að njóta betur matarins, spjalla og kynnast betur utan vinnutíma. Þeir sem eru á vakt hafa tækifæri að skipuleggja sig þannig að þeir komist líka í grillið. Við grillum úti á veröndinni við matsal og borðum inni og úti allt því hvort sólin skíni á okkur. Þessi dagsetning var valin með tilliti til þess að nú styttist í sumarfrí og gott að hrista saman hópinn fyrir fríið. Nú er bara að mæta með góða skapið og eiga saman góða stund!

Hrefna Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri