Velkomin á heimasíðu Skógarbæjar

Markmið okkar með heimasíðu er að veita aðgengilegar og gagnlegar upplýsingar um þá þjónustu, sem veitt er á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ og segja frá þeirri starfsemi, sem þar fer fram. Áhersla er lögð á að vefurinn innihaldi jafnan nýjar upplýsingar og sýni hvað heimilið hefur upp á að bjóða hverju sinni.

Hjúkrunarheimilið Skógarbær er sjálfseignastofnun, stofnuð af Reykjarvíkurborg,  Reykjarvíkurdeild RKÍ og Kvennadeild Reykjarvíkurdeildar RKÍ, ásamt stéttarfélögunum Dagsbrún, Framsókn og Sókn. Auk þess lagði Framkvæmdasjóður aldraðra fram 40% af stofnkostnaði. Rekstrarfé Skógarbæjar er í formi daggjalda frá ríkinu.

Skógarbær var formlega tekin í notkun 16. maí 1997. Fjöldi rýma var í upphafi 77 en var síðan fjölgað í 81 rými. Heimilið var hannað með það í huga veita heimilislegt yfirbragð og því ákveðið að deildirnar skyldu vera minni en áður tíðkaðist og var fámennasta deildin aðeins 8 rými en sú fjölmennasta  16 rými. Tvær deildir 8 og 11 rýma deildir voru ætlaðar fyrir minnissjúka einstaklinga, 3 voru almennar hjúkrunardeildir, 15-16 rými, og ein deildin var ætluð fyrir yngri hjúkrunarsjúklinga, 11 rými. Auk þess voru 3 rými á 1. hæð fyrir hvíldarinnlagnir.

Frá því að Skógarbær opnaði hafa orðið þær breytingar að einni af almennu deildunum hefur verið breytt í deild fyrir minnissjúka, lokaða deild, vegna aukinnar eftirspurnar um pláss fyrir einstaklinga með Alzheimer eða aðra minnissjúkdóma. Einnig voru hvíldarplássin  lögð af og þeim breytt í varanleg rými.

Í Skógarbæ í dag eru 37 rými fyrir minnissjúka, 11 rými fyrir yngri hjúkrunarsjúklinga og 33 rými á almennri hjúkrunardeild.
Fréttir
28.05.2009
Lions styrkur 2009
meira ->

29.11.2008
Opið Hús
meira ->

27.06.2008
Nýr vefur
meira ->

05.05.2008
Styrkur frá Lions
meira ->
Á döfinni
03.06.2009
Sumargrill starfsmanna
meira ->

29.11.2008
Jól og aðventa
meira ->
Myndasafn